Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Laddi Snjókorn falla

– skemmtilegustu jólalögin

  • Höfundur Jón Ólafsson
  • Myndhöfundur Úlfur Logason
Forsíða bókarinnar

Þjóðargersemin Laddi syngur hér öll skemmtilegustu jólalögin ásamt gömlum heimilisvinum við undirleik Jóns Ólafssonar. Eiríkur Fjalar, Dengsi, Skrámur, Elsa Lund og Skúli rafvirki koma öll við sögu og við syngjum með. Kynslóðirnar eru hér sameinaðar undir jólatrénu og hinn sanni jólaandi færist yfir stofuna. Ýttu á takkann, veldu lag og syngdu með.

Bókaflokkurinn Tónbækurnar okkar með undirleik píanóleikarans Jóns Ólafssonar og teikningum Úlfs Logasonar hefur slegið rækilega í gegn hjá börnunum á undanförnum árum. Snjókorn falla er nýtt afsprengi þeirra frábæra samstarfs.

Veljið eitt laganna, ýtið á takkann … dojojojoj … og syngið með!