Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Snúlli lærir um virðingu

  • Höfundur Helen Hafgnýr Cova
  • Myndir Helen Hafgnýr Cova
Forsíða kápu bókarinnar

Snúlli lærir um virðingu er þriðja bókin í seríunni um Snúlla. Að þessu sinni kemst Snúlli að því að virðing felst ekki alltaf í því að hlýða skilyrðislaust. Virðing getur tekið á sig margar myndir – gagnvart öðrum, sjálfum sér, hlutum og jafnvel skógi. Hvernig mun Snúlli læra að greina hvað á skilið virðingu og hvers vegna?

Hlý og fróðleg saga um samkennd, dómgreind og mikilvægi þess að huga að því sem umlykur okkur.

Persónurnar byggja á teikningum Davíðs Stefánssonar, sem ásamt höfundi myndskreytti fyrstu bókina í seríunni: Snúlla finnst gott að vera einn.