Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Sorprit og fleiri sögur

  • Höfundur Kristján Kristjánsson
Forsíða bókarinnar

Hvað eiga samhent hjón í sumarleyfi, rithöfundur, sorphirðumaður, flugvallarstarfsmaður, skóbúðareigandi og fíkniefnasmyglari sameiginlegt? Jú, mikilvæg augnablik á lífsleiðinni eins og við öll upplifum. Stundum rötum við jafnvel í hættulegar aðstæður – og ef við sleppum frá þeim fáum við kannski svör við stórum spurningum.

Hversdagslegustu atvik geta líka opnað augu okkar fyrir hverfulleika lífsins.

SORPRIT OG FLEIRI SÖGUR er fyrsta smásagnasafn Kristjáns Kristjánssonar. Hann hefur áður sent frá sér ljóðabækur, skáldsögur og leikrit.