Spakur spennikló og slóttugi Sámur

Tveir ræningjarakkar baka sér vandræði!

Forsíða bókarinnar

Spakur spennikló og slóttugi Sámur eru heimsins verstu ræningjar. Þegar enn eitt þaulskipulagða stórránið fer út um þúfur uppgötva þeir leynda hæfileika þar sem kleinuhringir og kökur koma við sögu.

Það var mið nótt, allt var kyrrt og hljótt.

Upp á himni skein hálfsofandi máni.

Um stræti og torg ráfuðu tveir ræfilslegir

ræningjarakkar í miðju ráni.