Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Stiklur um undur Íslands

  • Höfundur Ómar Ragnarsson
  • Myndhöfundur Friðþjófur Helgason
Forsíða bókarinnar

Við fylgjum eldhuganum Ómari Ragnarssyni, helsta baráttumanni okkar fyrir íslenskri náttúru, um perlur og stórbrotna staði þessa undralands sem Ísland er. Fetum í fótspor hans og ljósmyndarans Friðþjófs Helgasonar um fáfarnar slóðir, leynistaði sem þeir hafa heimsótt og svæði sem Ómar hefur sérstakt dálæti á. Ómar og Friðþjófur – stiklarar í 50 ár.

Ómar Ragnarsson þarf vart að kynna fyrir þjóðinni, en vandfundinn er sá Íslendingur sem hefur verið eins mikið á ferð og flugi og hann. Í lofti, á láði og legi hefur hann ferðast um allt Ísland þvert og endilangt og fetað nær allar þær ótroðnu slóðir sem fyrirfinnast í náttúru landsins. Þau eru án vafa fá sem skilið hafa eftir sig spor jafn víða og Ómar okkar Ragnarsson.

Í bókinni Stiklur um undur Íslands fá lesendur að feta í fótspor Ómars um fáförnustu slóðirnar, leynistaði sem Ómar hefur heimsótt og staði sem hann hefur sérstakt dálæti á. Við upplifum tilkomumikið landslag um stórbrotna dali, fallega fjarðarbotna og fjallahéruð sem landið hefur að geyma. Í leiðsögn Ómars og með augum ljósmyndarans Friðþjófs Helgasonar opnast okkur draumaveröld, þetta undraland sem Ísland óneitanlega er.

Ómar á sér langan og glæstan feril sem fjölmiðlamaður og skemmtikraftur en að þegar íslensk náttúra hefur átt undir högg að sækja stendur Ómar oftar en ekki fremstur í eldlínunni. Því skyldi engan hafa undrað að Dagur íslenskrar náttúru var stofnsettur 16. september árið 2011, á afmælisdegi Ómars, honum til heiðurs.

Friðþjófur Helgason á sér glæstan feril í ljósmyndun. Hann hefur unnið fyrir flesta prentmiðla hér heima og að auki getið sér gott orð sem kvikmyndatökumaður.