Straumar frá Bretlandseyjum
Rætur íslenskrar byggingarlistar
Straumar frá Bretlandseyjum - Rætur íslenskrar byggingarlistar er afrakstur sögulegs rannsóknarverkefnis arkitektanna Hjördísar og Dennis. Hún fjallar um hvernig áhrif frá Bretlandseyjum hafa mótað íslenska byggingarsögu frá upphafi byggðar og fram á daginn í dag.
Menn hafa þörf fyrir að þekkja uppruna sinn, menningu og sögu. Sagan veitir okkur sameiginlegt minni. Hún gefur tilfinningu fyrir stað, tengslum, stund og samfélagi.Til að skilja byggingarsöguna þarf að leita út fyrir landsteinana en þar liggja rætur hennar og uppruni. Norrænum áhrifum hafa verið gerð nokkur skil í byggingarsögunni en minna hefur farið fyrir umfjöllun um keltnesk og önnur áhrif frá Bretlandseyjum. Fjölmargar myndir prýða bókina en Hjördís og Dennis ljósmynduðu vel flest mannvirkin sem fjallað er um. Auk þess að vera höfundar bókarinnar eru Hjördís og Dennis Davíð einnig bókarhönnuðir og útgefendur hennar.