Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Tálsýn

  • Höfundur Rannveig Borg Sigurðardóttir
Forsíða bókarinnar

Líf Önnu er eins og spegilslétt yfirborð vatnsins. Þar birtist mynd af framakonu sem allir vegir eru færir. En vatnið tekur að gárast og vísbendingar um að óvinveitt öfl sæki að Önnu hrannast upp. Rannveig Borg Sigurðardóttir sló í gegn með fyrstu bók sinni, Fíkn, og fylgir henni hér eftir með afar spennandi bók.

Anna gegnir ábyrgðarmiklu starfi hjá alþjóðlegum fjárfestingabanka í Sviss, þar sem hún býr ásamt eiginmanni sínum og syni, og hennar bíða frekari vegtyllur.

Sjónvarpsmaðurinn Tryggvi vinnur að þáttum um þessa íslensku framakonu í hörðum heimi viðskiptanna og með þeim þróast vinskapur. En er allt sem sýnist?

Draugar úr fortíðinni vitja Önnu og smám saman molnar úr undirstöðum þess lífs sem hún hefur skapað sér.

Þegar þræðirnir koma saman stendur hún frammi fyrir erfiðum valkostum – en kannski hefur hún ekkert val.

Rannveig Borg Sigurðardóttir vakti mikla athygli með fyrstu bók sinni, Fíkn. Rannveig er búsett í Sviss, þar sem hún starfar sem lögfræðingur.