Trú og vald í mannkynssögunni
Meginstef þessarar bókar er að pólitískt vald styðjist ávallt við trúarlegt áhrifavald sem mótar grundvöll siða samfélagsins. Hér er um að ræða samband ríkis og trúarstofnana sem taka að mótast þegar sérstök prestastétt verður til í akuryrkjusamfélögum. Fjallað er um trúarhugmyndir og samfélag Forn-Egypta, íslam, páfadóm, einveldi og loks um kirkju og stjórnmál á Íslandi.