Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Umbrot

  • Höfundur Sigurjón Bergþór Daðason
Forsíða kápu bókarinnar

Pétur lifir kyrrlátu lífi, vinnur við að smíða gervilimi og aðstoðar vin sinn sem hannar íslenskan talgervil. Hann er flæktur í heim eftirlíkinga, en þegar hann neyðist skyndilega til að horfast í augu við fortíð sína sækja að honum erfiðar spurningar sem hann hefur hingað til látið ósvarað.

Pétur lifir kyrrlátu lífi, vinnur við að smíða gervilimi og aðstoðar vin sinn sem hannar íslenskan talgervil. Hann er flæktur í heim eftirlíkinga, en þegar hann neyðist skyndilega til að horfast í augu við fortíð sína sækja að honum erfiðar spurningar sem hann hefur hingað til látið ósvarað. Umbrot er saga um ást og dauða, minningar og þörfina til að skilja uppruna sinn, tæknina og hvað hún getur sagt okkur um stóru spurningarnar í lífinu. Umbrot er þriðja skáldsaga Sigurjóns. Áður hafa komið út Hendingskast og Óbundið slitlag, en þær hlutu báðar afar lofsamlega dóma.