Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Við

  • Höfundur Helen Hafgnýr Cova
  • Myndir Fanny Sissoko
Forsíða kápu bókarinnar

Hvað þýðir það í raun og veru að vera við? Við er einlæg og hlý saga eftir rithöfundinn Helen Hafgný Cova prýdd gullfallegum myndlýsingum listakonunnar Fanny Sissoko.

Sagan fjallar á næman hátt um vináttu, góðvild og gleðina sem felst í því að skapa rými í hjörtum okkar, lífi og samfélagi til þess að verða betri við.

Helen Hafgnýr Cova og Fanny Sissoko eru báðar búsettar á Íslandi og hafa í gegnum leik og störf skoðað hvað það þýðir að eignast nýtt heimaland og hvernig við vöxum sem þjóð með því að taka höndum saman.

„Helen Hafgnýr Cova er sannkallaður fjársjóður fyrir íslenska barnabókamenningu og heillandi teikningar Fanny Sissoko glæða söguna litríku lífi.“

Bergrún Íris, barnabókahöfundur