Höfundur: Ólafur Unnsteinsson

Hús hinna sívölu ganga

Samvöxnu tvíburarnir Lotta og Myrra leita skjóls á Reykjalundi undan ofstækisfullum föður þeirra og sértrúarsöfnuðinum sem hann leiðir. Þar vonast þær eftir vísbendingum um móður þeirra í skiptum fyrir hættulega skurðaðgerð. Jafnframt verða þær að forðast að verða næstu fórnarlömb skæramorðingjans alræmda. Kostulegt og hrollvekjandi persónusafn.

Úr eldri árgöngum

Athugið að bækur úr eldri útgáfum Bókatíðinda eru birtar hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar.

Titill Höfundur Útgefandi Lýsing
Þegar nóttin sýnir klærnar Ólafur Unnsteinsson Hringaná ehf. Árið er 2013 og Álafosskvosin er vinsæll áfangastaður ferðamanna sem langar að sjá listaverk svefngengilsins, konu sem gengur í svefni og málar draumsýnir þær sem á vegi hennar verða. Þegar hún málar mynd af manni sem hvarf sporlaust ellefu árum fyrr tekur dóttir hans til sinna ráða og fær vini sína til að elta konuna inn í dimma skóga að næturl...