Höfundur: Örn Árnason
Úr eldri árgöngum
Athugið að bækur úr eldri útgáfum Bókatíðinda eru birtar hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar.
Titill | Höfundur | Útgefandi | Lýsing |
---|---|---|---|
Hundrað óhöpp Hemingways | Lilja Sigurðardóttir | Storytel | Glæpasagnadrottningin Lilja Sigurðardóttir fetar hér nýjar slóðir og leiðir hlustendur í gegnum ævi rithöfundarins Ernests Hemingways, allt frá æsku hans sem lítil stúlka til harmrænna endaloka hans. Örn Árnason túlkar Hemingway af sinni alkunnu snilld, og á leiðinni er staldrað við fjölmörg ævintýraleg óhöpp skáldsins. |
Sögustund með Afa | Örn Árnason | Storytel | Örn Árnason rifjar hér upp dásamlega takta sem Afi allra landsmanna og býður börnunum í notalega sögustund. Með Afa geta þau slappað af og lært um allt mögulegt milli himins og jarðar. Börnin fá að heyra skemmtilegar sögur, jafnt gamlar sem nýjar og kynnast því hvernig lífið var hér áður fyrr. Það er alltaf gott að eiga rólega stund með Afa. |
Yfirsjónir | Hlín Agnarsdóttir | Storytel | Yfirsjónir er safn fimm samtengdra smásagna sem hverfast um ofbeldi og afleiðingar þess. Sjónarhornið er oft óvænt og frásögnin margslungin. Sérhver saga er sjálfstætt verk. Sögurnar geta bæði verið nístandi sorglegar og launfyndnar en allar eiga þær það sammerkt að hitta lesandann í hjartastað. |