Höfundur: Theodor Kallifatides
Úr eldri árgöngum
Athugið að bækur úr eldri útgáfum Bókatíðinda eru birtar hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar.
| Titill | Höfundur | Útgefandi | Lýsing |
|---|---|---|---|
| Mæður og synir | Theodor Kallifatides | Dimma | Theodor Kallifatides heldur hér sínu striki og er sjálfur í miðju frásagnarinnar. Að þessu sinni fer hann frá Svíþjóð til gamla heimalandsins, Grikklands, og heimsækir móður sína á tíræðisaldri í Aþenu. Um leið rifjar hann upp endurminningar föður síns og tengir uppruna- og ættarsögu við samtal þeirra mæðgina um lífið og tilveruna. |
| Nýtt land utan við gluggann minn | Theodor Kallifatides | Dimma | Kallifatides yfirgaf Grikkland 1964, fluttist til Svíþjóðar og heillaðist af nýju landi og tungumáli. Í bókinni fjallar hann um uppruna sinn og stöðu eftir áratuga búsetu í nýja landinu og fléttar saman á hrífandi hátt hugleiðingum um tungumál og tilvist, minningar, ást og eigin ímynd, auk möguleika sem felast í framandi menningarheimi. |
| Það liðna er ekki draumur | Theodor Kallifatides | Dimma | Ég var átta ára gamall þegar afi tók í hönd mína og sleppti henni ekki fyrr en við fundum foreldra mína í Aþenu. Hver veit hvað annars hefði gerst. Nokkrum vikum áður hafði vopnaður hópur fasista smalað öllum íbúum þorpsins saman í ytri garðinn við kirkjuna. |