Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Aðeins færri fávitar

Forsíða bókarinnar

Aðeins færri fávitar er önnur bók Sólborgar Guðbrandsdóttur, byggð á samnefndu samfélagsverkefni hennar gegn stafrænu og annars konar kynferðisofbeldi.

Hér er vangaveltum unglinga um samskipti kynjanna, kynlíf og sambönd svarað og áhersla lögð á sterka sjálfsmynd þeirra og sjálfsöryggi.

Fyrsta bók Sólborgar, Fávitar, var ein mest selda bókin í fyrra.