Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Eikonomics

  • Höfundur Eiríkur Ásþór Ragnarsson
Forsíða bókarinnar

Sumir halda að hagfræði sé hrútleiðinleg og snúist eingöngu um verðteygni, stýrivexti, verga þjóðarframleiðslu og arðsemi eigin fjár á fyrsta ársfjórðungi. En í húsi hagfræðinnar eru fleiri herbergi, svo sem jóla- og djammhagfræðin auk landabruggs- og bílasöluhagfræðinnar. Hér er hlutur þeirra réttur nokkuð í grútskemmtilegri og stórfróðlegri bók.