Arnar saga Björnssonar Ekki standa á öðrum fæti allt lífið

Forsíða bókarinnar

Bókin er ævisaga Arnar Björnssonar fyrrum útibústjóra Íslandsbanka á Húsavík.

"Ef þú íhugar hvert skref til fullnustu stendur þú á öðrum fæti allt lífið" eru einkunnar orð Arnar Björnssonar,fyrrverandi útibústjóra Íslandsbanka á Húsavík, sem hér segir frá ævintýralegum lífsferli sínum á sinn sérstaka hátt.

Hestamaður, veiðimaður, eiginmaður, faðir, skrifstofumaður, bóndi í Gauksmýri í Vestur-Húnavatnssýslu og síðast sem útibústjóri Íslandsbanka á Húsavík, hefur Örn ávallt fylgt þessum einkunnarorðum sínum, sem vísa til þess að sýna kjark og hugrekki í verkefnum lífsins.

Það skiptast á skin og skýrir í lífi Arnar sem og í íslensku samfélagi. Í gegnum ferðalag hans frá fjögurra ára aldri til dagsins í dag kynnumst við þróun samfélagsins, atvinnulífs og menningu á tímum umbreytinga og mikilla framfara. Við fáum einnig innlit í endalok uppgangstímans í bankakerfinu fyrir hrun, en 23 ára starfsferli Arnar sem útibústjóra lauk nokkrum dögum áður en íslenska fjármálakerfið hrundi ári 2008.

"Fróðleg og skemmtileg lífssaga manns sem fór aðra leið á toppinn en flestir"

Silja Aðalsteinsdóttir

Bókina má finna á Storytel í líflegum lestri Arnar Árnasonar