Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Feiknstafir

Ráðgátan um Grím Thomsen

  • Ritstjórar Sveinn Yngvi Egilsson og Þórir Óskarsson
Forsíða bókarinnar

Grímur Thomsen (1820–1896) var skáld, bókmenntafræðingur, heimspekingur, embættismaður og stjórnmálamaður. En hver var þessi maður sem mörgum hefur reynst ráðgáta? Hópur hugvísindafólks rannsakaði Grím og samtíma hans í tilefni af tveggja alda afmæli hans. Þessi bók varpar nýju ljósi á einn þekktasta fulltrúa 19. aldarinnar á Íslandi.

Var Grímur óþjóðlegur heimsborgari eða rammíslenskur bóndi, talsmaður nýrra viðhorfa eða fornra, einn á báti eða í samfloti með öðrum? Hvers vegna var hann ýmist í vörn eða sókn, huldi slóð sína og brá iðulega yfir sig grímu? Hvað leynist á bak við feiknstafina sem einkenna svipmót hans og skrif? Hópur hugvísindafólks rannsakaði Grím og samtíma hans í tilefni af tveggja alda afmæli hans. Afraksturinn getur að líta í þessari bók sem varpar nýju ljósi á einn þekktasta fulltrúa 19. aldarinnar á Íslandi.