Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Flug í ókyrru lofti

  • Höfundur Pétur J. Eiríksson
Forsíða bókarinnar

Þetta er sagan af því hvernig tókst að skapa nýtt Icelandair og breyta einu versta flugfélagi Evrópu í eitt það besta. Pétur J. Eiríksson sem stóð í hringiðunni í 28 ár segir hér opinskátt og hreinskilið frá því sem gerðist að tjaldabaki og gefur óvenjulega innsýn í rekstur Flugleiða, FL Group og síðan Icelandair Group.

Ekkert nema kraftaverk virtist geta bjargað Icelandair og fátt blasti við nema

gjaldþrot eftir viðvarandi offramboð og verðstríð á Norður Atlantshafi. Með

gamlar flugvélar sem sjaldan flugu á réttum tíma og úr sér gengna

viðskiptahugmynd gat félagið lítið gert til að mæta þörfum viðskiptavina annað

en að lækka fargjöld. Félagið var komið í vítahring sem aðeins gat leitt til hins

versta. En stjórnendur og starfsfólk misstu aldrei trúna. Þó að framtíðarsýnin

næði stundum ekki nema út vikuna og viðskiptahugmyndin væri sú ein að lifa

af unnu þau kraftaverkið og rufu vítahringinn og leiddu félagið til

endurnýjunnar og arðbærs vaxtar.

Þetta er sagan af því hvernig tókst að skapa nýtt Icelandair og breyta einu

versta flugfélagi Evrópu í eitt það besta. Hvernig nýjar hugmyndir, nýjar

flugvélar, nýtt leiðakerfi og nýir innviðir og ekki síst sterk samstaða og traust

forysta Sigurðar Helgasonar gáfu okkur fram úr skarandi flugfélag.

Þetta er sagan af ólgu og átökum og hvernig nýjar hugmyndir vekja upp

andstæð sjónarmið svo oft hriktir í stoðunum. Þetta er sagan af því hvernig

nýir eigendur komu stefnulausir að félaginu, sköpuðu óstöðugleika og ýttu frá

góðum stjórnarháttum. En líka af því hvernig starfsfólkið dró vagninn áfram

sama hvernig vindar blésu.

Pétur J. Eiríksson stóð í hringiðunni í 28 ár og segir hér opinskátt og hreinskilið

frá því sem gerðist að tjaldabaki og gefur óvenjulega innsýn í rekstur Flugleiða,

FL Group og síðan Icelandair Group.