Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Gengið til rjúpna

Allt um rjúpnaveiði fyrir byrjendur og lengra komna

  • Höfundur Dúi J. Landmark
Forsíða bókarinnar

Farið er yfir það hvernig rjúpnaskyttur þurfa að útbúa sig áður en haldið er til veiða, hvernig best er að haga sér á veiðislóð, greint frá líffræði rjúpunnar, sögu rúpnaveiða, hvernig á að hantera bráðina og matreiða rúpur. Og svo eru veiðisögur af öllu tagi.

Rjúpnaveiðar hafa verið stundaðar á Íslandi frá landnámi og rjúpan er fastagestur á borðum margra landsmanna um jólin. Í þessari glæsilegu bók er fjallað um rjúpnaveiðar frá mörgum sjónarhornum. Farið er yfir það hvernig rjúpnaskyttur þurfa að útbúa sig áður en haldið er til veiða, hvernig best er að haga sér á veiðislóð og greint frá ýmsum þáttum í líffræði rjúpunnar.

Dúi J. Landmark rekur einnig sögu rjúpnaveiða á Íslandi frá upphafi til okkar daga og þar er margt sem kemur á óvart. Þá eru leiðbeiningar um það hvernig fara á með villibráðina þegar heim er komið – alla leið á veisluborðið en nokkrar sérlega girnilegar uppskriftir er að finna í bókinni. Í lokin eru svo veiðisögur af ýmsu tagi sem eiga eftir að gleðja marga. Bókina prýðir fjöldi ljósmynda sem auka enn á gildi bókarinnar.

Dúi hefur gengið til rjúpna frá því hann var unglingur, er útvistarmaður og náttúruunnandi og hefur leikstýrt heimildamyndum um veiði og náttúru víðsvegar um heiminn.