Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Hvarf Jims Sullivans

Forsíða bókarinnar

Bandaríkjamaðurinn Dwayne Koster var heillaður af örlögum landa síns, tónlistarmannsins Jims Sullivans sem nánast gufaði upp í eyðimörkinni í Nýju-Mexíkó árið 1975. Ekkert hefur spurst til hans síðan og engar vísbendingar hafa komið fram um hvað af honum hafi orðið. Marglaga skáldsaga sem fetar nýjar slóðir eftir franskan verðlaunahöfund.

......

Bandaríkjamaðurinn Dwayne Koster var heillaður af örlögum landa síns, tónlistarmannsins Jims Sullivans sem nánast gufaði upp í eyðimörkinni í Nýju-Mexíkó í marsmánuði 1975. Ekkert hefur spurst til hans síðan þá og engar vísbendingar hafa komið fram um hvað af honum hafi orðið. Dwayne ákveður að stytta sér aldur á sömu slóðum og síðast sást til Jims Sullivans. En þessi skáldsaga segir líka aðra sögu og það er saga hennar sjálfrar og hins uppdiktaða höfundar hennar sem bætir sífellt við litlum bútum í frásögnina og hylur þannig mörk sögunnar móðu. Má því segja að í þessu verki Taguays Viels felist tvíþætt svar — bæði tilvistarlegt og fagurfræðilegt — við spurningunni um endalok.

„Skrif Tanguy Viel heltaka lesandann.“ – Libération

„Skopstæling Tanguys Viels á „amerísku skáldsögunni“ er þaulhugsuð og fetar nýjar slóðir; hún segir sögu í sama mund og hún vekur spurningar um frásagnagerðina sem hún lýtur.“ – The French Review

Franski rithöfundurinn Tanguy Viel fæddist í Brest á Bretaigne-skaga árið 1973. Hann er höfundur nokkurra skáldsagna og hefur hlotið mörg helstu bókmenntaverðlaun í heimalandi sínu, svo sem Prix Fénéon, Prix littéraire de la vocation, Grand Prix RTL-Lire og Prix François Mauriac. Hann býr nálægt Orléans í Frakklandi.