Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Konan sem elskaði fossinn

Sigríður í Brattholti

  • Höfundur Eyrún Ingadóttir
Forsíða bókarinnar

Sigríður í Brattholti (1871–1957) er einn kunnasti náttúruverndarsinni Íslandssögunnar. Hún bjó alla sína ævi í nágrenni við Gullfoss og þegar upp komu hugmyndir um að virkja fossinn hóf hún ein og óstudd baráttu gegn þessum áformum, baráttu fyrir málstað sem hún var tilbúin að fórna lífinu fyrir.

Um áratugaskeið talaði Sigríður máli fossins og vildi að hann fengi að „flæða af hamrinum ... óhaggaður af höndum manna“. Í fyrstu var það fyrir daufum eyrum en smám saman jókst samúðin með málstað hennar. Samhliða þessu þurfti Sigríður að glíma við erfiðleika á heimili sínu og í einkalífi.

Eyrún Ingadóttir sagnfræðingur hefur um árabil rannsakað ævi og baráttu Sigríðar í Brattholti. Árið 2012 sendi hún frá sér sögulegu skáldsöguna Ljósmóðirin sem gagnrýnendur kölluðu „magnaða örlagasögu“,var ein af söluhæstu bókum ársins og var að auki tilnefnd til Fjöruverðlaunanna.

Konan sem elskaði fossinn er stórbrotin baráttusaga sem lætur engan ósnortinn.