Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Kuldagustur

Forsíða bókarinnar

Þriðja bókin um lögregluforingjann Gunnhildi. – Gunnhildur hefur fengið leyfi frá störfum til að vera lífvörður manns sem fé hefur verið sett til höfuðs. Þeim er komið fyrir á „öruggum stað“ utan Reykjavíkur. Brátt kemur í ljós að þau eru alls ekki örugg og staðurinn ekki eins leynilegur og látið hafði verið í veðri vaka.

Í einangruninni með manninum kynnist Gunnildur honum smám saman betur og fortíð hans. Hún veltir því fyrir sér hvort það sé þess virði að hætta lífi sínu við að verja mann sem hefur fjölda mannslífa á samviskunni ...

Fyrri bækurnar tvær um Gunnhildi, Bláköld lygi og Á hálum ís, fengu hinar bestu viðtökur.

Enski blaðamaðurinn og rithöfundurinn Quentin Bates hefur tekið ástfóstri við Ísland og glæpasögur hans gerast allar á Íslandi.

„Glæpasögur í hæsta gæðaflokki, vel samdar, vel skrifaðar og sannfærandi lýsingar á vinnubrögðum lögreglu.“ – The Times

„Vel skrifuð og grípandi.“ – Woman's Way

„Frábær ný sería.“ – Eurocrime