Leyndardómar Draumaríkisins

Forsíða bókarinnar

Nóttina eftir að hinn ellefu ára Davíð varð fyrir höfuðhöggi í körfubolta er hann skyndilega staddur í Draumaríkinu, töfrandi stað þar sem draumar eru búnir til. Þar hittir hann Sunnu sem kynnir hann fyrir nýjum og spennandi heimi. En vandi steðjar að Draumaríkinu – martraðaskrímsli eru byrjuð að skemma drauma. Spennandi og skemmtileg verðlaunabók!

Kamilla Kjerúlf er fædd árið 1995 og er með meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands. Leyndardómar Draumaríkisins er fyrsta bók hennar en handritið að bókinni hlaut Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur 2023.