Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Með skýra sýn

  • Höfundur Guðmundur Magnússon
Forsíða kápu bókarinnar

Endurminningar Magnúsar Gústafssonar, fyrrum forstjóra Hampiðjunnar og Coldwater Seafood í Bandaríkjunum eru um margt mjög áhugaverð lesning um líf manns sem var sendur ungur í fóstur en braust af dugnaði til bjargálna. Guðmundur Magnússon sagnfræðingur skrifar hér lipurlega um stórmerkilegan feril manns sem var í mörgu brautryðjandi í viðskiptum.

Magnús Gústafsson er mörgum Íslendingum kunnur þótt hann hafi lengst af starfað á erlendri grundu. Meðal annars gengdi Magnús í tvo áratugi forstjórastöðu hjá fisksölufyrirtækinu Coldwater Seafood í Bandaríkjunum. Þar áður hafði hann verið forstjóri Hampiðjunnar auk þess að starfa við rekstrarráðgjöf og sitja í stjórnum fjölmargra fyrirtækja, íslenskra og erlendra, á löngum og farsælum ferli. Hann var um tíma aðalræðismaður Íslands í New York.

Með skýra sýn, endurminningar Magnúsar Gústafssonar, eru um margt mjög áhugaverð lesning um líf manns sem var sendur ungur í fóstur en braust af dugnaði til bjargálna. Hann kom að breytingum í atvinnulífi Íslendinga á umbrotatímum og tók ríkan þátt í að selja innlendar afurðir í Bandaríkjunum. Hér fer Magnús yfir sviðið og segir frá merkilegum atburðum og fólki sem hann kynntist.

Guðmundur Magnússon, sagnfræðingur og blaðamaður, skrifar hér lipurlega um stórmerkilegan feril manns sem var í mörgu brautryðjandi í íslensku viðskiptalífi. Með skýra sýn er bók sem er kærkomin þeim sem hafa áhuga á íslenskri samfélagsþróun á síðari hluta 20. aldar.