Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Nýja Reykjavík

Umbreytingar í ungri borg

  • Höfundur Dagur B. Eggertsson
Forsíða bókarinnar

Á undanförnum áratugum hefur Reykjavík tekið miklum stakkaskiptum – og á næstu árum mun borgin breytast enn meira. Dagur B. Eggertsson fjallar um sögu þessara róttæku hugmynda sem í stígandi mæli eru að verða að veruleika. En það gekk ekki átakalaust og margt gerðist bak við tjöldin.

Á undanförnum áratugum hefur Reykjavík tekið ótrúlegum stakkaskiptum. Lengi vel voru þessar breytingar einungis hugmyndir á blaði en nú eru þær farnar að rísa upp úr jörðinni umbreyta borginni – og á næstu árum munu þær breyta borginni enn meira og hafa mikil áhrif á lífshætti borgarbúa. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hefur með réttu eða röngu orðið andlit þessarar umbyltingar á Reykjavík.

Dagur heillaðist fljótlega af skipulagsmálum og sá að þau voru grunnurinn að góðri og lifandi borg. Í þessari persónulegu og glæsilegu bók fer hann yfir það hvernig nýja Reykjavík hefur verið að taka á sig mynd frá róttækum hugmyndum til veruleika – hvernig bílaborg er að breytast yfir í borg þar sem þarfir fólksins eru í fyrirrúmi.

En þessar breytingar hafa ekki gengið átakalaust fyrir sig. Hér sviptir Dagur hulunni af ýmsu sem gerðist á bak við tjöldin, kostulegum uppákomum og stórum og metnaðarfullum hugmyndum sem enn liggja í loftinu og hafa verið á fárra vitorði.