ÓGN
Ævintýrið um Dísar-Svan
Bráðskemmtilegt íslenskt ævintýri.
Amma heldur því fram að álfar séu til. Svandís trúir ekki á álfa en þegar dularfull skilaboð berast henni er hún ekki lengur viss í sinni sök. Í kringum hana er margt einkennilegt á kreiki. Köttur með rauð augu, dularfullir hestar og fólk sem ef til vill er annað en það sýnist vera. Svandís flækist inn í baráttu góðs og ills, kynnist ástinni og þarf ásamt vinum sínum að glíma við ógurlegar kynjaskepnur. Það leggur enginn þessa bók frá sér nema í neyð, en tekur hana þá líka upp aftur við fyrsta tækifæri.