Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Anna í Grænuhlíð Rilla á Arinhæð

VIII

  • Höfundur L.M. Montgomery
  • Þýðandi Sigríður Lára Sigurjónsdóttir
Forsíða kápu bókarinnar

Börn Önnu og Gilberts eru næstum fullorðin, fyrir utan hina fallegu og skapmiklu Rillu Blythe. Þegar sagan hefst er Rilla tæplega fimmtán ára og getur ekki hugsað um annað en að fara á sinn fyrsta dansleik og fá sinn fyrsta koss frá hinum myndarlega Kenneth Ford.

En ófyrirséðar áskoranir koma heimi hennar í uppnám og reyna á hugrekki hennar.Fyrri heimsstyrjöldin er skollin á. Bræður hennar ganga í herinn og hún kemur dag einn heim með munaðarlausan nýbura í súpuskál.

Rilla á Arinhæð hefur sérstöðu innan kanadísks samfélags og heimsbókmennta sem fyrsta sagan sem fjallaði um fyrri heimsstyrjöldina út frá sjónarhorni kvenna. Bókin kom upphaflega út á frummálinu árið 1921 og er áttunda og jafnframt síðasta skáldsagan í þessum sagnabálki.