Saga Landsvirkjunar

Orka í þágu þjóðar

Forsíða bókarinnar

Þessi bók segir hálfrar aldar sögu Landsvirkjunar auk sögu raforkunnar á Íslandi frá upphafi. Landsvirkjun er eitt umsvifamesta fyrirtæki Íslands í almannaeigu og hefur gegnt lykilhlutverki við að nýta orkuauðlindir landsins. Í bókinni er brugðið upp svipmyndum úr samtímaheimildum og efnið skýrt með fjölda ljósmynda, korta og skýringamynda.

Landsvirkjun er eitt umsvifamesta fyrirtæki Íslands í almannaeigu og hefur gegnt lykilhlutverki við að nýta orkuauðlindir landsins. Hún hefur staðið fyrir sumum vandasömustu stjórframkvæmdum Íslandssögunnar, viðkvæmum og umdeildum vegna tengsla við atvinnustefnu, byggðaþróun og náttúruvernd. Þessi bók segir hálfrar aldar sögu Landsvirkjunar, 1965 til 2015, jafnframt því sem yfirlit er veitt um sögu raforkunnar á Íslandi frá upphafi og þrææðir raktir fram yfir 2020. Brugðið er upp svipmyndum úr samtímaheimildum og efnið skýrt með fjölda ljósmynda, korta og skýringamynda.