Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Sannar sögur af einhverjum helvítis kalli í Mosfellsbæ

  • Höfundur Gunnlaugur Ólafsson Johnson
Forsíða kápu bókarinnar

Hér er sagt frá starfsleyfislausri loðfelda­­verkun, fegurðarsam­keppnum og fjöldamorðingjum, eltihrellum og erfidrykkjum. Allt tíundað af mikilli nákvæmni og smá­smygli svo úr verður bráðfyndin og brotakennd en lifandi mynd af ævi einhvers helvítis karls í Mosfellsbæ.

Hér er sagt frá minnisstæðum atburðum í lífi miðaldra karls sem hefur ýmsa fjöruna sopið. Hvort sem er af starfsleyfislausri loðfelda­­verkun, ótta við að upp komist misferli á miðilsfundi, inn­brotum erlendis, ógleymanlegri brúðkaupsferð, fegurðarsam­keppnum og fjöldamorðingjum, eltihrellum og erfidrykkjum. Nytjastuldur á embættisbifreið forsetaembættisins kemur við sögu, sem og gisting með gelískum sniglum og snjáldurmúsum í ævafornum kastala. Og margt fleira. Allt er þetta tíundað af mikilli nákvæmni og

smá­smygli svo úr verður brotakennd en lifandi mynd af ævi einhvers helvítis karls í Mosfellsbæ.