Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Skotti og sáttmálinn

  • Höfundur Unnur Sveinsdóttir
Forsíða bókarinnar

Hvað er það versta sem 12 ára strákur gæti þurft að takast á við í lífi sínu? Kannski mannabein sem eru ekki þar sem þau ættu að vera? Ótrúlega dularfullan leynikjallara með hryllilegum hættum? Sex eldri systur? Eða kannski flóðrottur?

Hefur þú hitt flóðrottu? Ertu ekki viss? Veistu kannski ekki hvernig hún lítur út?

Hér er lýsing sjónarvotts á dæmigerðri flóðrottu.

(Athugið að eftirlifandi sjónarvottar eru færri en ætla mætti.)

Hún er á hæð við 12 ára gamlan krakka.

Lítur svolítið út eins og sveppabjúga á mjóum fótum.

Húðin skorpin og sprungin svo sést niður í bleikt hold

Augun lítil og rauð

Trýnið stutt með löngum framtönnum sem vaxa á misvíxl

Sterklegir jaxlar, sérhannaðir til að tyggja og kremja börn

Hrrrrryllilega andfúl

Beittar klær

Flóðrottur eru geðvondar alætur, fljótar að hlaupa, vel syndar og hreint ekki vitlausar.

Skotti þarf að takast á við ýmsar hættur í daglegu lífi á Útoríu. Flóðrottur eru aðeins eitt dæmi. Sex eldri systur er annað. Sem betur fer á hann góða vini sem hægt er að reiða sig á í vandræðum.