Skuggar

Saga falls, útskúfunar, upprisu og uppgjörs

Forsíða bókarinnar

Skuggar segir frá örlagaríkum tímum í lífi Sölva Tryggvasonar. Ósönn slúðursaga fór á flug á samfélagsmiðlum og fjölmiðlar hentu hana á lofti. Við tók hvirfilbylur samfélagsumræðunnar sem jókst enn með tilkynningu um að konur hefðu kært Sölva til lögreglu. Í bókinni reynir Sölvi að skilja hvað gerðist og bregður um leið ljósi á sína dýpstu skugga.

Á einni viku fór Sölvi frá hápunkti ferils síns yfir í að missa mannorð sitt og lífsviðurværi. Fallið var hátt, Sölva var útskúfað úr samfélaginu og lagði á flótta út í lönd. Það ferðalag var ekki síður inn á við þar sem hann reyndi að skilja hvað hefði gerst og brá um leið ljósi á sína dýpstu skugga, myrkur og áföll.

Annar maður hefur nú verið dæmdur fyrir þann glæp sem Sölvi var bendlaður við og lögregla hefur vísað frá öllum kærum á hendur honum. En var það helber tilviljun að einmitt nafn Sölva skyldi fléttast inn í þessa harkalegu atburðarás, eða höfðu stórir brestir sem hann burðaðist með komið í bakið á honum? Sölvi leiðir lesandann með sér í þetta afdrifaríka ferðalag þar sem hann snýr öllum steinum við til að reyna að skilja hvernig þetta allt gat gerst, veltir samfélagsumræðunni fyrir sér og þætti fjölmiðla. Skuggar er uppgjör Sölva við sjálfan sig og samfélagið allt.