Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Sólgeislar og skuggabrekkur

  • Skrásetning Svala Arnardóttir
Forsíða kápu bókarinnar

Margrét Ákadóttir leikkona er mörgum kunn. Hér segir hún frá viðburðaríku lífshlaupi sínu þar sem skipst hafa á skin og skúrir, eins og titill bókarinnar ber með sér. Margrét ræðir æskuárin í austurbæ Reykjavíkur en þau mörkuðust meðal annars af því að hún var dóttir eins umdeildasta stjórnmálamanns þjóðarinnar.

Margrét Ákadóttir leikkona er mörgum kunn. Hér segir hún frá viðburðaríku lífshlaupi sínu þar sem skipst hafa á skin og skúrir, eins og titill bókarinnar ber með sér. Margrét ræðir æskuárin í austurbæ Reykjavíkur en þau mörkuðust meðal annars af því að hún var dóttir eins umdeildasta stjórnmálamanns þjóðarinnar og að margir í móðurfjölskyldu hennar voru gallharðir kommúnistar á Siglufirði.

Í bókinni fer Margrét yfir viðburðarík mótunarár sín, ástarsambönd, ferðalög, búsetu í útlöndum, leiklistarferil sinn og athafnasemi ýmiss konar. Hún er mikill frumkvöðull í listmeðferð og er einn fyrsti Íslendingurinn sem lauk slíku námi. Hún segir frá starfi sínu með geðfötluðum og frábærum árangri breskra listmeðferðarfræðinga ì vinnu sinni með föngum. Hún lýsir baráttu sinni fyrir betra lífi fyrir fatlaðan son sinn Áka.

Svala Arnardóttir skrifar þessa áhugaverðu sögu Margrétar af innsæi og næmni. Sólgeislar og skuggabrekkur - Saga Margrétar Ákadóttur leikkonu, er saga sigra og sorga, saga konu sem aldrei gafst upp þrátt fyrir mikið mótlæti. Þetta er saga sem lætur enga ósnortna.