Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Það sem dvelur í þögninni

  • Höfundur Ásta Kristrún Ragnarsdóttir
Forsíða kápu bókarinnar

Í þessari ættarskáldsögu sækir Ásta Kristrún í sagnabrunninn sem hún er alin upp við til að varpa ljósi á magnað lífshlaup formæðra sinna.

Í þessari ættarskáldsögu sækir Ásta Kristrún í sagnabrunninn sem hún er alin upp við til að varpa ljósi á magnað lífshlaup formæðra sinna. Sögusviðið er vítt og breitt um landið – meðal annars á Grenjaðarstað í Aðaldal, Hólmum í Reyðarfirði, Bessastöðum, Arnarfirði, Eyrarbakka og Reykjavík auk þess sem siglt er út fyrir landsteinana.

Fólkið sem fjallað er um var virkt í stjórnmála- og menningarsögu 19. aldarinnar og fram á þá tuttugustu. En í ástar- og hugsjónabaráttu stígur lífið einatt flókinn dans. Dramatískar sögur dvelja margar í þögninni, því sársaukinn sem mörgum þeirra fylgir hefur verið of erfiður til að horfast í augu við. Með bók sinni leggur höfundur sitt af mörkum til að draga sögu ættliðanna úr þagnarhyl aldanna.