Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Tilfinningar eru fyrir aumingja

  • Höfundur Kamilla Einarsdóttir
Forsíða kápu bókarinnar

Til að bregðast við yfirvofandi miðaldrakrísu fær Halla vini sína til að stofna með sér metalband. Það þarf að redda mörgu en erfiðastur er alvarlegur skortur á tónlistarhæfileikum. Samhliða þessu geisa stormar í einkalífi Höllu sem valda stöðugu tilfinningatjóni.

„Kamilla er rétt að byrja og er augljóslega hæfileikaríkt ólíkindatól sem engin leið er að spá um hvað gerir næst,“ sagði Þorgeir Tryggvason gagnrýnandi Morgunblaðsins um Kópavgoskróniku. Hér er svarið við komið við því hvað hún gerði næst.

Til að bregðast við yfirvofandi miðaldrakrísu, sem kemur ekki síst fram í eilífu tali um dren og skólplagnir, fær Halla vini sína sem öll eiga sér skrautlega fortíð til að stofna með sér metalband. Það þarf að redda mörgu en erfiðastur er alvarlegur skortur á tónlistarhæfileikum.

Samhliða sérkennilegum hljómsveitaræfingum geisa stormar í einkalífi Höllu. Leitin að ástinni í öllum sínum myndum krefst mikilla fórna og veldur stöðugu tilfinningatjóni.

Fyndin og grípandi en um leið sár og djúp saga um fólk sem reynir að leitast við að finna fótfestu í glerhálu lífinu.