Útsaumsverk Þorbjargar Halldórsdóttur frá Strandarhjáleigu
Fjallað er um ævi, feril og verk útsaumskonunnar Þorbjargar Halldórsdóttur (1875-1979). Að loknum bústörfum settist hún 69 ára gömul að á Selfossi árið 1944. Þá hófst ferill Þorbjargar sem tekstíllistakonu og varði í 30 ár. Myndir hennar með byggingum og sögustöðum eru einstakar og má telja nýmæli í tekstíllist. Fjöldi litmynda prýða bókina.