Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Vængjalaus

  • Höfundur Árni Árnason
Forsíða bókarinnar

SSSól í Sjallanum, döggvott gras í íslenskri sumarnótt, nætursund og allt sem hefði getað orðið ... Sumarið er 1996. Baldur er rúmlega tvítugur, Auður ellefu árum eldri. Af tilviljun liggja leiðir þeirra saman norður á Akureyri, einn dag og eina nótt, og fundur þeirra á eftir að hafa mikil áhrif á líf beggja.

Tveimur áratugum síðar stendur Baldur á krossgötum og ákveður að leggja upp í ferð á vit óvissunnar og fortíðarinnar en ekki síður til að horfast í augu við sjálfan sig.

Árni Árnason hefur áður skrifað tvær bækur fyrir börn og unglinga en sýnir hér á sér nýja hlið í skemmtilegri og spennandi skáldsögu sem hreyfir við lesandanum en kveikir líka nostalgíu og hugljúfa stemningu.

"Vængjalaus er tilvalinn ljúflestur fyrir fallegu (og líklega frekar vætusömu) haustkvöldin framundan. Sagan flæðir áreynslulaust og vekur upp ljúfsárar tilfinningar um lífið og þær óvæntu stefnur sem það getur tekið.“ Rebekka Sif Stefánsdóttir/ Lestarklefinn.is

„Vængjalaus er ljúf og auðmelt ástarsaga á yfirborðinu sem undir yfirborðinu snertir þó við stærri spurningum um ást, þráhyggju, eigingirni og endurheimt,“

Brynhildur Björnsdóttir, Fréttablaðinu