Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Hugarfrelsi Vellíðan barna - Handbók fyrir foreldra

  • Höfundar Hrafnhildur Sigurðardóttir, Unnur Arna Jónsdóttir og Ingrid Kuhlman
Forsíða bókarinnar

Markmið bókarinnar er að styrkja foreldra. Í hverjum kafla er að finna ýmsan fróðleik og fjölbreyttar æfingar sem hafa það að markmiði að kenna börnum hagnýtar aðferðir til að efla sig og styrkja þannig að þau verði betur í stakk búin að takast á við krefjandi verkefni í námi og leik.

Bókin byggir á aðferðum jákvæðrar sálfræði. Lögð er áhersla á jákvæða sjálfsmynd, mikilvægi styrkleika, val á viðhorfi, tilfinningagreind, vináttu, hamingju, þakklæti, hreyfingu og svefn. Einnig er fjallað um mikilvæg atriði eins og öndun, núvitund, slökun og hugleiðslu. Að auki eru innlegg frá sérfræðingum á ýmsum sviðum.