Höfundur: Már Jónsson

Úr eldri árgöngum

Athugið að bækur úr eldri útgáfum Bókatíðinda eru birtar hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar.

Titill Höfundur Útgefandi Lýsing
Galdur og guðlast Dómar og bréf I-II Sögufélag Galdramál 17. aldar eru óhugnanlegur vitnisburður um refsihörku yfirvalda sem á sextíu árum létu brenna eina konu og tuttugu og einn karl á báli. Í þessu tveggja binda verki eru teknir saman allir tiltækir dómar og bréf sem vörðuðu ákæru eða orðróm um galdra á árabilinu 1576-1772. Már Jónsson prófessor bjó til útgáfu og ritar inngang og skýringar.
Lúkíansþýðingar Sveinbjarnar Egilssonar Lúkíanus frá Samosata Bókaútgáfan Sæmundur Verk Lúkíans, sem uppi var á 2. öld, nutu lengi mikilla vinsælda, ekki síst til kennslu í forngrísku, meðal annars við Bessastaðaskóla á fyrstu áratugum 19. aldar. Hér birtast þau í óviðjafnanlegum þýðingum Sveinbjarnar Egilssonar sem varðveittar eru í handritum skólapilta. Már Jónsson bjó til prentunar og skrifar ítarlegan inngang.