Höfundur: Viktoría Buzukina

Úr eldri árgöngum

Athugið að bækur úr eldri útgáfum Bókatíðinda eru birtar hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar.

Titill Höfundur Útgefandi Lýsing
Ljósaserían Jónas ísbjörn og jólasveinarnir Súsanna Gottsveinsdóttir Bókabeitan Bókaklúbbur barnanna - ljosaserian.is Jónas er kominn í jólafrí. Hann hlakkar mikið til að fá gómsæta jólasteik - og skógjafir frá jólasveinunum! En 19. desember er skórinn hans tómur úti í glugga og í fjárhúsinu rekst hann á afar skrítinn karl. Jónas býður karlinum inn í hús og þá gerast heldur betur undarlegir hlutir!
Stafasmjatt Viktoría Buzukina Króníka Stafasmjatt er gómsæt og fallega myndskreytt bók um stafrófið. Í bókinni kynnast börnin einnig ýmsum matartegundum og auka þar með orðaforða sinn. Stafasmjatt er gott bragð fyrir börn til að uppgötva heim stafrófsins. Verði ykkur að góðu.
Súperbækur Súper Viðstödd Paola Cardenas og Soffía Elín Sigurðardóttir Sjálfstyrkur Klara er fjörug og uppátækjasöm stúlka. Hún á stundum erfitt með að einbeita sér og truflast auðveldlega. Með aðstoð frá Súper Viðstaddri og afa sínum lærir Klara að nota núvitundaræfingar og jóga til að róa hugann og fær um leið útrás fyrir hreyfiþörfina og leiðir til þess að takast a við krefjandi aðstæður.
Súperbækur Súper Vinalegur Paola Cardenas og Soffía Elín Sigurðardóttir Sjálfstyrkur Nói er ævintýragjarn og sniðugur strákur. Hann er stundum feiminn og finnur fyrir kvíða þegar hann er í kringum aðra krakka. Með aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar (HAM) líður Nóa betur og lærir gagnlegar leiðir til þess að taka á við kvíða og auka félagsfærni.
Súperbækur Súper Vitrænn Paola Cardenas og Soffía Elín Sigurðardóttir Sjálfstyrkur Tristan er tilfinningaríkur drengur sem fær stundum óþægilegar hugsanir og verður þá dapur. Með aðstoð frá Súper Vitrænum lærir hann hvernig hugsanir, tilfinningar og hegðun hafa áhrif á hvort annað.