Að deyja frá betri heimi

Ævisaga Jónasar Kristjánssonar læknis

Forsíða bókarinnar

Jónas Kristjánsson ákvað að gerast læknir þegar móðir hans dó frá átta börnum í torfbæ í Svínadal árið 1881. Þá var hann 11 ára að aldri. Faðir hans lést nokkru síðar og fjölskyldan var leyst upp. Jónas barðist til mennta og útskrifaðist sem læknir um aldamótin. Fáir ef nokkrir hafa barist eins ötullega fyrir bættu heilbrigði þjóðarinnar en Jónas.

Jónas var landsþekktur héraðslæknir frá aldamótum til síðari heimstyrjaldar, barðist fyrir auknu hreinlæti, heilnæmari lifnaðarháttum og betra mataræði. Iðulega þurfti að fara vegleysur um fjallvegi í illviðrum til að bjarga mannslífum og voru sjúklingar stundum skornir upp á hurðum sem rifnar voru af hjörum.

Á síðari hluta ævinnar áttu náttúrulækningar hug Jónasar allan. Hann vildi koma í veg fyrir sjúkdóma, frekar en að bregðast við þegar komið væri í óefni. Lífsstarfið var fullkomnað með opnun Heilsuhælisins í Hveragerði á 85 ára afmæli hans.

Einstök saga af eldhuga sem barðist fyrir því að deyja frá betri heimi en hann þurfti að takast á við sem barn.