Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Byrgið

Sögur, kjarnyrði, brot

  • Höfundur Franz Kafka
  • Þýðendur Ástráður Eysteinsson og Eysteinn Þorvaldsson
Forsíða kápu bókarinnar

Þessi bók geymir úrval fjölbreyttra styttri texta sem Franz Kafka, einn áhrifamesti höfundur 20. aldar, lét eftir sig óútgefna er hann lést árið 1924: bráðskemmtilegar örsögur, smásögur og nóvellur, kjarnyrði og sögubrot. Safnið sýnir vel tök Kafka á knöppum frásögnum en hann var frumkvöðull í ritun örsagna. Ástráður Eysteinsson skrifar eftirmála.