Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Guð leitar að Salóme

  • Höfundur Júlía Margrét Einarsdóttir
Forsíða bókarinnar

Í örvæntingarfullri leit að kisunni sinni venur Salóme komur sínar á Kringlukrána til að skrifa bréf stíluð á Helgu. Með lifandi frásagnargleði afhjúpar hún sjálfa sig og leitar skilnings á fjölskyldusögunni, ástinni og sálarstríði ungrar konu í grátbroslegum smábæjarharmleik. Hér er á ferðinni martraðarkennd uppvaxtar- og ástarsaga úr rammíslenskum veruleika.

Salóme týnir kettinum sínum rétt fyrir jólin og í örvæntingarfullri leit sinni venur hún komur sínar á Kringlukrána. Hún sest við barinn og skrifar bréf þar sem hún opinberar sig í fyrsta sinn. Bréfin eru stíluð á hina dularfullu Helgu sem vann með Salóme í versluninni Betra lífi tíu árum fyrr. Með lifandi frásagnargleði afhjúpar hún sjálfa sig og leitar skilnings á fjölskyldusögunni, ástinni og sálarstríði ungrar konu í grátbroslegum smábæjarharmleik þriggja ættliða á Akranesi. Við sögu koma spákona í Fossvogi, drykkfelldur organisti og auðvitað örlagavaldurinn Helga. Hér er á ferðinni martraðarkennd uppvaxtar- og ástarsaga úr rammíslenskum veruleika.

Júlía Margrét Einarsdóttir er með MA gráðu í ritlist frá Háskóla Íslands og MFA gráðu í handritagerð frá New York Film Academy. Hún hefur áður sent frá sér nóvellu og ljóðabók og sló eftirminnilega í gegn með sinni fyrstu skáldsögu, Drottningunni á Júpíter (2018). Samhliða skrifum starfar Júlía við menningarblaðamennsku og dagskrárgerð