Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Kötturinn Emil sem allir vildu eiga

  • Höfundur Helga Ólafs
  • Myndir Gerður Steinars
Forsíða kápu bókarinnar

Hjartnæm saga byggð á sönnum atburðum. Það var á köldu vetrarkvöldi að kötturinn Emil hvarf sporlaust frá heimili sínu í Mosfellsbæ aðeins tveggja ára. Heimilisfólkið leitaði hans logandi ljósi en Emil fannst hvergi. Í heil sjö ár átti Emil viðburðaríkt líf langt frá fjölskyldu sinni en vonin um að þau fengju að sjá hann aftur slokknaði aldrei.

Mamma Emils, Helga Ólafs, gefur honum rödd með því að skrásetja ævintýralega sögu hans, og Gerður Steinars teiknar hrífandi og fjörlegar myndir. Hinn litríki Emil er sjálfur hispurslaus í frásögn sinni og dregur ekkert undan!

Kötturinn Emil sem allir vildu eiga er spennandi og hjartnæm saga fyrir börn og ketti á öllum aldri.