Miðillinn

Forsíða bókarinnar

Á köldum vetrarmorgni er rannsóknarlögreglan kölluð út að Hólavallagarði. Innan um þá sem þar hafa verið lagðir til hinstu hvílu finnst lík eldri konu og fljótt er ljóst að dauðdaga hennar hefur borið að með saknæmum hætti. Hver getur hafa átt eitthvað sökótt við þessa eldri konu sem virðist hafa verið hlédræg, vanaföst og einförul?

Þegar rannsókninni miðar áfram er greinilegt að ekki var allt sem sýndist í lífi konunnar og Guðgeir Fransson og teymi hans eiga fullt í fangi með að leysa þetta dularfulla mál sem meðal annars leiðir þau á miðilsfundi og djúpt í þyrnum stráða fortíð fórnarlambsins.

Miðillinn er æsispennandi saga úr smiðju Sólveigar Pálsdóttur sem hlaut Blóðdropann, verðlaun fyrir bestu íslensku glæpasöguna, fyrir bók sína Fjötra.

Það sem við höfum heyrt er satt. Sólveig Pálsdóttir er með þetta!

Financial Times

Sólveig Pálsdóttir er meistari í að skapa andrúmsloft og draga upp sviðsmyndir. Fjötrar sýna snilldartök höfundarins á persónusköpun og góðum fléttum.

West Words Reviews

Sólveig Pálsdóttir er hluti af efsta laginu sem myndar rjóma íslenskra glæpasagnahöfunda.

Crime Fiction Lover

Um höfundinn

Miðillinn er áttunda bók Sólveigar Pálsdóttur en hún hlaut Blóðdropann, verðlaun fyrir bestu

íslensku glæpasöguna, fyrir bók sína Fjötra og var hún jafnframt framlag Íslands til

Glerlykilsins, norrænu glæpasagnaverðlaunanna. Sama ár var Sólveig valin

bæjarlistamaður Seltjarnarness, fyrst rithöfunda. Sólveig hefur tvívegis verið tilnefnd til verðlauna hjá Storytel. Bækur hennar hafa komið út á ensku og þýsku.