Rúmmálsreikningur

Forsíða bókarinnar

Þessi verðlaunasaga er um ástina og hverfulleika heimsins. Það er 18. nóvember. Á hverju kvöldi þegar Tara Selter fer að sofa er 18. nóvember og á hverjum morgni þegar hún vaknar er 18. nóvember. Hún á ekki lengur von á að það sé kominn 19. nóvember þegar hún vaknar og hún man ekki lengur eftir 17. nóvember eins og hann hafi verið í gær.