Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Ritröð Árnastofnunar nr. 120 Þorsteins saga Víkingssonar

Útgáfa eftir AM 556 b 4to

  • Umsjón Þórdís Edda Jóhannesdóttir
Forsíða kápu bókarinnar

Þorsteins saga Víkingssonar telst til fornaldarsagna Norðurlanda og var að öllum líkindum samin á 14. öld. Í sögunni er greint frá ævintýrum aðalhetjanna sem ferðast víða, afla sér fjár og frægðar og sigrast á margvíslegum hindrunum sem á vegi þeirra verða.

Sagan er varðveitt í fjórum skinnhandritum, þremur frá fimmtándu öld og einu frá sextándu öld. Tvö þessara handrita eru aðeins lítil brot. Í þessari útgáfu er texti sögunnar prentaður eftir handritinu AM556 b 4to sem er frá fimmtándu öld. Valin lesbrigði úr öðrum handritum eru prentuð neðanmáls. Í inngangi er gerð grein fyrir varðveislu sögunnar, aldri og bókmenntalegu samhengi. Texti sögunnar eftir AM556 b 4to hefur ekki birst áður á prenti