Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Veistu ef þú vin átt

Minningar Aðalheiðar Hólm Spans

  • Höfundur Þorvaldur Kristinsson
Forsíða bókarinnar

Átján ára stofnaði Aðalheiður Hólm

Starfsstúlknafélagið Sókn sem sameinaði konur í lægstu

stéttum þjóðfélagsins í baráttu fyrir mannsæmandi lífi og hún stóð fremst í sveit þeirra sem töluðu máli alþýðukvenna á hörðum tímum.

Endurútgáfa.

"Áhrifamikil og djúpvitur saga." Vigdís Finnbogadóttir

Haustið 1946 fluttist Aðalheiður Hólm af landi brott með hollenskum eiginmanni sínum sem hún hafði kynnst í Reykjavík á styrjaldarárunum. Þá stóð hún á þrítugu en hafði engu að síður komið víða við sögu. Átján ára stofnaði hún Starfsstúlknafélagið Sókn sem sameinaði konur í lægstu stéttum þjóðfélagsins í baráttu þeirra fyrir mannsæmandi lífi og öll sín ár á Íslandi stóð hún fremst í sveit þeirra sem töluðu máli alþýðukvenna á hörðum tímum. Í Hollandi tókst Heiða síðan á við hlutskipti þess sem kemur að utan og þarf alla ævi að berjast fyrir því að vinna land til að vera talinn fullgildur þegn.

Saga Heiðu Hólm kom fyrst út árið 1994 og birtist hér í endurútgáfu. Í leiftrandi frásögn rifjar hún upp þjóðlíf fortíðar og bregður upp meitluðum myndum af þeim Íslendingum sem börðust fyrir betra lífi og bættri siðmenningu. Oft mætti Heiða andbyr á langri ævi en vann líka eftirminnilega sigra, trú tilfinningum sínum og samvisku til hinstu stundar.