Lesið í tarot

Uppgötvaðu sögurnar í tarot-spilunum

Forsíða bókarinnar

Gakktu inn í dularfullan og kynngimagnaðan heim tarot og uppgötvaðu töfrandi sögur á bak við spilin í bók sem á sér enga líka. Sögurnar í bókinni og þemu hvers spils nýtast þér til að fræðast um leyndardóma tarot og dýpka skilning þinn svo að þú getir tileinkað þér spekina sem spilin búa yfir.

Gakktu inn í dularfullan og kynngimagnaðan heim tarot og uppgötvaðu töfrandi sögur á bak við spilin í bók sem á sér enga líka.

Hvert tarot-spil hefur sögu að segja og er þrungið táknrænni merkingu. Í þessari fallegu bók, sem hentar byrjendum jafnt sem lengra komnum, glæðir sérfræðingurinn Alison Davies söguna að baki hverju spili lífi.

Fylgdu Fíflinu á ferðum sínum um Major Arcana þar sem það fetar sig áfram á lífsins vegi og hittir fyrir lykilpersónur á borð við Einsetumanninn, Dauðann og Æðstuprestynjuna. Lærðu sögurnar að baki sortanna fjögurra í Minor Arcana. Uppgötvaðu hvernig systur þrjár risu til valda í sort myntanna og hvernig hugmynd sem breytti heiminum fæddist í sort vandanna.

Sögurnar í bókinni og þemu hvers spils nýtast þér til að fræðast um leyndardóma tarot og dýpka skilning þinn svo að þú getir tileinkað þér spekina sem spilin búa yfir.