Geðraskanir án lyfja Líf án geðraskana

Bók 3

Forsíða kápu bókarinnar

Tilgangur þessara bóka er að fólk með geðraskanir nýti sér fleiri leiðir til að takast á við þær, að aðstandendur fái dýpri innsýn inn í heim fólks með geðraskanir og geti þannig umborið ástand þeirra með meiri þolinmæði og skilningi. Að ný sýn og meiri áhugi náist hjá læknum til að tengja við óhefðbundnar leiðir til að vinna með geðraskanir.

Höfundur bókanna hefur frá 2012 skrifað um það hvernig hún tókst á við flækjustig af geðröskunum úr barnæsku. Fyrsta bókin Geðraskanir án lyfja kom út árið 2018 á prenti, önnur bókin Geðraskanir og sjálfsvinna 2019 og þriðja bókin Líf án geðraskana sl. sumar. Fleiri bækur munu koma út þar sem úrvinnsla úr áföllum hefur tekið sinn tíma.

Höfundur bókanna tók þá ákvörðun að takast á við geðraskanir sínar án lyfja og hefur því aldrei tekið kvíða-, þunglyndis- eða svefnlyf, heldur sótti í leiðir þar sem unnið var með flækjustigin á meðvitaðan hátt.

Hafa það verið DAM meðferð (díalektísk meðferð), dáleiðsla til að fara inn í fyrri líf, heilun, hugleiðslu og cranio (höfuðbeina- og spjaldhryggmeðferð). Þegar draga fór úr geðsveiflum tók við uppbygging til að læra ýmislegt sem maður á að læra sem barn og ná þannig fram þroska og getu til þess að takast á við lífið og öllu sem því fylgir.

Margar áskoranir hafa verið á þessari vegferð en samhliða hefur höfundur rekið Kærleikssamtökin sem í dag eru almannaheillafélag með þann tilgang að rjúfa félagslega einangrun fólks vegna fátæktar, heimilisleysis og áfalla. Allur ágóði þessara bóka renna til samtakanna.

Nú eru bækurnar fáanlegar sem rafbækur á www.sjalfshjalputgafa.is

Allur ágóði bókanna rennur til Kærleikssamtakanna.