Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Vegferð til farsældar

Sýn sjálfstæðismanns til 60 ára

  • Höfundur Vilhjálmur Egilsson
Forsíða kápu bókarinnar

Vilhjálmur Egilsson fjallar um þróun íslensks samfélags undanfarna áratugi og sýn sína á nokkur mikilvæg viðfangsefni sem framundan eru. Vilhjálmur bendir á að íslenskt samfélag sé nú í fremstu röð vegna margvíslegra umbóta sem gerðar voru á tíunda áratug síðustu aldar. En hvert stefnir, hvað má betur fara og á hvað ber að leggja áherslu?

Um leið og Vilhjálmur svarar þessum spurningum kryddar hann umfjöllun sína með fjölmörgum skemmtilegum sögum af ýmsu sem fyrir hann hefur borið á fjölbreytilegri ævi.

Vilhjálmur Egilsson (f. 1952) hefur starfað í Sjálfstæðisflokknum frá unglingsárum. Hann var formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna á árunum 1985–1987 og alþingismaður flokksins á árunum 1991–2003. Á starfsferli sínum hefur Vilhjálmur ennfremur verið hagfræðingur Vinnuveitendasambands Íslands, framkvæmdastjóri Verslunarráðs Íslands og Samtaka atvinnulífsins, ráðuneytisstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu, setið í framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og verið rektor Háskólans á Bifröst. Hann hefur víðtæka reynslu og þekkingu á íslensku samfélagi og hefur á ferli sínum í ýmsum hlutverkum komið að mörgum stórum ákvörðunum um málefni þess.